(none)
/ molar.is / english /

Hvernig þarf Blogger.com template skjalið að líta út?

Nokkuð algengt er að færslur fólks hætti að birtast í fyrirsagnalistum RSS.molar.is eftir að fólk hefur breytt útliti blogg-síðna sinna. Þetta stafar af því að RSS.molar.is leitar að sérstökum orðum í HTML kóða síðunnar sem tilgreina hvar færslan byrjar. Við útlitsbreytingar hverfa þessi "merki" stundum og færslurnar verða í þar með ósýnilegar fyrir vélmennið sem býr til fyrirsagnalistana.

Til að laga þetta vandamál, þarf að breyta "template" skilgreiningu blogg-síðunnar hjá Blogger.com. Það er gert með því að skrá sig inn í Blogger.com og velja "Template". Þá birtist núgildandi útlitsskilgreining bloggsins, sem þú þarft að breyta og vista í samræmi við þessar leiðbeiningar.

Í "template" skilgreiningunni er kafli sem lýsir hvernig stakar færslur eiga að líta út. Sá kafli lítur gjarnan sirka svona út:

<Blogger>
<BlogDateHeader>

<$BlogDateHeaderDate$>

</BlogDateHeader>

<a name="<$BlogItemNumber$>">

<a class="byline" href="<$BlogItemArchiveFileName$>#<$BlogItemNumber$>">
Posted <$BlogItemDateTime$>
by <$BlogItemAuthorNickname$>

<$BlogItemBody$>

<BlogDateFooter>

</BlogDateFooter>
</Blogger>

Reyndar er líklegt að þetta líti töluvert öðruvísi út hjá þér, en það sem skiptir mestu máli er feitletrað: á milli <Blogger> og </Blogger> kemur örugglega fyrir merkið <$BlogItemBody$>, því án þess birtast engar færslur á bloggsíðunni.

Hinsvegar er algengt að síðasta merkið vanti - en til þess að RSS.molar.is geti fundið færslurnar þínar, þarf <a name="<$BlogItemNumber$>"> að koma fyrir á eftir <Blogger>, en á undan <$BlogItemBody$>.

Nákvæmlega hvar skiptir ekki endilega öllu máli - ef þú límir þetta merki inn í "template" skjalið á heppilegum stað og vistar, þá eru góðar líkur á að það dugi til þess RSS.molar.is finni færslurnar þínar og uppfæri fyrirsagnalistana til samræmis.