(none)    
/ molar.is / english /
 


Help! I don't understand Icelandic!

Efnisyfirlit:



Hvað er RSS.molar.is?

RSS.molar.is er þjónusta sem gefur öllum sem hafa heimasíðu einfalda leið til að birta stutt yfirlit yfir fyrirsagnir dagsins af ýmsum fréttasíðum, dagbókum og vefleiðurum víðsvegar um heim, bæði íslenskum og erlendum.

Þjónustan byggir á nokkrum sérsmíðuðum forritum sem sækja, lesa og birta XML innihald hvaða RSS skráa(r) sem er. Með notkun <IFRAME> er svo á einfaldan hátt hægt að birta efni af RSS.molar.is sem hluta af heimasíðu þriðja aðila - t.d. heimasíðunni þinni.

Þeir sem hafa kunnáttu og aðstöðu til þess geta að sjálfsögðu sótt verkfærin (þau eru gefins) og gert þetta á eigin spýtum, en RSS.molar.is gerir öllum öðrum sem hafa heimasíðu kleyft að nota þetta líka.

Nokkur sýnishorn af fyrirsagnalistum eru að finna á forsíðu vefsins og í dagbók Bjarna.



OK, en hvað í ósköpunum er RSS?

RSS er samheiti yfir nokkra XML staðla sem notaðir eru til að gefa út yfirlit yfir nýjar fréttir á vef. RSS skjal inniheldur upplýsingar um vefinn sem um ræðir, ásamt upptalningu á fyrirsögnum nýjustu frétta vefsins og slóðum að þeim.

Tæknilega séð er varla flóknara að gefa út RSS heldur en að birta á vefsíðu lista af fyrirsögnum. Eini munurinn er að skjalið er á RSS (XML) formi, í stað HTMLs. Smelltu hér til að sjá sýnishorn af RSS skjali (ath: þú gætir þurft að gera "save as" og opna með ritli á borð við notepad).

Hér er ágæt síða með svörum við algengum spurningum (FAQ) um RSS.

Ef þú ert vefstjóri sem vilt gera lesendum þínum kleift að fylgjast með vefnum þínum með hjálð RSS.molar.is, lestu þá þetta.



Hvernig nota ég RSS.molar.is?

Ýmsar leiðir eru til að nota þessa þjónustu. Ef þig vantar RSS yfirlit fyrir einhver þeirra miðla sem þjónustan fylgjumst með, þá geturðu nálgast slóðirnar að þeim eða RSS skrárnar sjálfar hér og notað að vild. Þetta er mjög einfalt og verður ekki fjallað nánar um það hér.

Hér er hægt að sækja verkfærin sem þjónustan byggir á og nota á eigin vélum.

Algengast er þó að menn vilji einfaldlega birta fyrirsagnayfirlit á sínum heimasíðum, en láta RSS.molar.is um alla tæknivinnuna. Fyrst og fremst verður fjallað um þann möguleika hér fyrir neðan.


Hvernig birti ég RSS fréttareit á heimasíðunni minni?

Að birta fyrirsagnalista heimasíðunni þinni með hjálp RSS.molar.is er mjög einfalt. Þú bætir bara við á e-m hentugum stað HTML kóða sem lítur svona út:


 <iframe src="http://rss.molar.is/rss/?skipanir"
         width="250" height="250" frameborder="0">
   Hér kemur HTML texti sem birtist bara í vöfrum 
   sem þekkja ekki IFRAME.
   <a href="http://rss.molar.is/rss/?skipanir">Fyrirsagnalisti</a>
 </iframe>

Að sjálfsögðu geturðu breytt breidd (width) og hæð (height) reitsins og öðrum HTML eiginleikum - aðalvandinn er að semja réttar skipanir til að segja RSS.molar.is hvaða fyrirsagnirnar þú hefur áhuga á.

Skipanalínan samanstendur af þremur hlutum. Fremst er CSS-skilgreining, þar á eftir stillingar (töflur, uppfærslutíðni) og loks listi fréttaveita sem þú vilt fylgjast með.

Nokkur dæmi:

Lýsing CSS stilling fréttaveitur
5 fyrirsagnir úr dagbókum Bjarna og Más.
Ekkert CSS stílblað, sjálfgefin gildi.
?   &=5,Bjarni,bre
&=5,Mar,mar
10 fyrirsagnir af cnn.com
Grár bakgrunnur, uppfærist á 10 mínútna fresti.
?grey-css &refresh=10 &=10,cnn,erl-cnn
Bjarni og Már aftur
Engin tafla og með gráu stílblaði
og röðunar-tökkum.
?mar-css &notables
&sortable=1
&=Bjarni,bre
&=Mar,mar
Morgunblaðið án íþróttafrétta
Uppfært á hálftíma fresti, engin tafla,
grátt stílblað, röðunar-takkar.
?mar-css &refresh=30
&notables
&sortable=1
&=7,Innlent,mbl-innlent
&=7,Erlent,mbl-erlent
&=7,Tölvur,mbl-togt
&=7,Viðsk.,mbl-vidskipti
&=7,Fólk,mbl-verold
ATH: Smelltu á lýsingarnar til að sjá útkomuna.


Hvaða fyrirsagnir eru í boði?

Dæmin hér fyrir ofan notuðu öll fyrirfram skilgreindar fréttaveitur, úr lista yfir uppsettar fréttaveitur (sem öll hafa stutt, þjál gælunöfn). Auk þeirra eru þúsundir annarra á vefnum sem hægt er að birta með hjálp RSS.molar.is, með því að slá inn fulla vefslóð að RSS skránni.

Dæmi:
  http://rss.molar.is/rss/?&=cnn,http://cnn.com/cnn.rss

Listi erlendra aðila sem flokka og gefa út nothæf RSS skjöl er að finna á veitusíðunni.

Athugið að í fyrsta skipti sem ný fréttaveita er skoðuð virðast allar fyrirsagnir hennar vera glænýjar - það getur tekið nokkurn tíma fyrir röðun fyrirsagna að ná eðlilegri tímaröð.


Hvernig breyti ég litum og letri reitsins?

Litum og letri reitanna og reyndar stakra lína er hægt að stjórna með því að gefa upp slóð (eða gælunafn) CSS-skjals. CSS er skammstöfun fyrir "Cascading Style Sheet" og er sá hluti HTML 4 staðalsins sem notaður er til að stjórna útliti vefsíðna. Því miður er CSS of flókið til að hægt sé að kenna á það hér, en hér á RSS.molar.is eru nokkur tilbúin CSS-skjöl sem þú getur hvort sem er notað eða afritað og lagað að þínum þörfum.

Í dæmunum hér fyrir ofan má sjá hvernig útliti er stjórnað með gælunöfnum mismunandi CSS-skjala, en eins og með RSS-skjölin er einnig hægt að gefa upp vefslóð að CSS-skjali að eigin vali.

Dæmi:
  http://rss.molar.is/rss/?http://rss.molar.is/greys.css&=cnn,erl-cnn

Í HTML kóða fyrirsagnareitanna eru að finna nokkur merki (classes) sem má nota til að stjórna útliti þeirra. Þar ber helst að nefna að sérhver fréttaveita hefur merkingu á forminu "ch_N", þar sem N er heiltala á bilinu 1 og uppúr. Þannig væri fyrsta fréttaveitan í skipanalínunni með merkt með "ch_1", önnur "ch_2" og svo framvegis. Þetta má t.d. nota til að gefa fyrirsögnum mismunandi fréttaveita mismunandi bakgrunnslit eins og í dæmunum hér fyrir ofan.

Innan hverrar línu hefur auðkenni veitunnar merkið "id" og fyrirsögnin sjálf merkið "title". Listinn allur er merktur með "list" og fóturinn neðst með "footer". Nokkur önnur merki eru að finna í HTML kóðanum - ég mæli með að þeir sem eru að smíða sín eigin CSS-skjöl kíkji einfaldlega í kóðann til að sjá hvaða merki eru í boði (leita að "class=...").

Sýnishorn af CSS-skjölum má finna á yfirlitssíðu fréttaveita.


Hvernig fjölga/fækka ég fyrirsögnum?

Fréttaveituskilgreining getur haft sem fyrsta lið tölustaf sem segir til um fjölda fyrirsagna sem birta skal frá þeim aðila. Þessi tala má vera hvar sem er á bilinu 1-50.

Dæmi:
  http://rss.molar.is/rss/?&=cnn,erl-cnn (sjálfgefinn fjöldi)
  http://rss.molar.is/rss/?&=50,cnn,erl-cnn (50 fyrirsagnir)
  http://rss.molar.is/rss/?&=4,cnn,erl-cnn (4 fyrirsagnir)


Hvernig losna ég við töfluna?

Stillingin &notables sleppir töflunni úr fyrirsagnareitnum og notar <div> í staðinn til að aðgreina fyrirsagnirnar en <div> gefur kost á fjölbreyttari CSS útlitsstillingum.

Dæmi:
  http://rss.molar.is/rss/?mar-css&=cnn,erl-cnn&=reg,erl-register
  http://rss.molar.is/rss/?mar-css&notables&=cnn,erl-cnn&=reg,erl-register


Hvernig raða ég færslunum upp á nýtt?

Stillingin &sortable=1 kveikir á röðunarhaus í úttakinu, þar sem hægt er að smella til að fá fyrirsögnum endurraðað með ýmsum hætti.

Stillingin &sortable=0 slekkur á þessu.

Dæmi:
  http://rss.molar.is/rss/?&sortable=0&=erl,mbl-erlent&=innl,mbl-innlent
  http://rss.molar.is/rss/?&sortable=1&=erl,mbl-erlent&=innl,mbl-innlent


Hvernig breyti ég tíðni uppfærslnanna (e. refresh rate)?

Stillingin &refresh=N ræður hversu ört fyrirsagnareiturinn uppfærir sig. N er tala sem táknar mínútur milli uppfærslna, ef N er 0 þá er slökkt á uppfærslunum. Einnig má skeyta aftan við N bókstafinn "j" eða bókstafinn "m", til að ráða hvaða tækni er notuð til að útfæra uppfærsluna - "j" notar javascript, "m" notar svokallað meta-refresh. Javascript uppfærslan er sjálfgefin.

Dæmi:
  http://rss.molar.is/rss/?&refresh=0&=cnn,erl-cnn (aldrei)
  http://rss.molar.is/rss/?&refresh=10&=cnn,erl-cnn (10 mín. fresti)
  http://rss.molar.is/rss/?&refresh=30m&=cnn,erl-cnn (30 mín. fresti, án Javascript)


Hvaða tilkynningar eru þetta?

Búið er að bæta við nýrri veitu fyrir tilkynningar og hugsanlega auglýsingar frá RSS.molar.is. Þessa veitu þarf ekki sérstaklega að biðja um þegar RSS fyrirspurnir eru skilgreindar, heldur bætist hún við sjálfkrafa (nema annað sé tekið fram).

Stillingin &noads slekkur á þessum tilkynningum. Við mælum eindregið gegn því að þetta sé gert, nema á síðum þar sem nokkur mismunandi RSS yfirlit eru að birtast saman. Tilkynningarnar eru eina leið RSS.molar.is til að koma skilaboðum til notenda sinna.

Eins og nafn merkisins gefur til kynna ("&noads") er um leið verið að afþakka auglýsingar frá kerfi RSS.molar.is. Enn sem komið er, er ekki verið að selja auglýsingar - en það kemur auðvitað til greina að gera það seinna meir ef tækifæri bjóðast eða reksturinn byrjar að þyngjast.

Dæmi:
  http://rss.molar.is/rss/?&=cnn,erl-cnn (með)
  http://rss.molar.is/rss/?&noads&=cnn,erl-cnn (án)



Í hvaða vöfrum virkar þetta allt saman?

Allir vafrar geta birt síðurnar sem RSS.molar.is býr til, en einungis allra nýjustu vafrar (IE 4, Netscape 6, Konqueror 2.x, nýjasta Opera, nýlegur Lynx...) kunna á <IFRAME> og CSS tæknina sem mælt er með á þessari síðu. Að nota <IFRAME> og CSS mun þó ekki koma í veg fyrir að vefsíðan þín verði nothæf með eldri vöfrum, svo lengi sem þú gætir þess að skrifa eitthvað skynsamlegt "til vara" á milli <IFRAME> og </IFRAME>.

Það er reyndar til að bæta samhæfni við suma vafra sem sjálfgefin uppfærsluaðferð er Javascript en ekki "meta-refresh". Ekki er mælt með því að menn hverfi frá sjálfgefnu stillingunum hvað það varðar.



Hvernig kemst vefurinn minn á lista hjá RSS.molar.is?

Forsendan fyrir skráningu á RSS.molar.is, er að vefurinn þinn gefi út fyrirsagnalista á RSS formi, eða sé viðhaldið með kerfi á borð við blogger.com (sjá hér f. neðan).

Ef þessi forsenda er uppfyllt þá getur þú sett vefinn þinn á lista skilgreindra fréttaveitna og fengið þægilegt gælunafn í kerfinu með því að fylla út þar til gert eyðublað. Þar þarf að koma fram slóð að RSS 0.91, RSS 0.92 eða RSS 1.0 skjali vefsins þíns, ásamt lýsingu á innihaldinu og tillögu að gælunafni.

Smelltu hér til að sjá sýnishorn af RSS skjali (ath: þú gætir þurft að gera "save as" og opna með ritli á borð við notepad).


En ef ég nota blogger.com?

Þeir sem nota blogger.com eða önnur svipuð kerfi geta líka komist á lista hjá RSS.molar.is, þó svo að blogger búi ekki eins og er til RSS fyrir notendur sína. Í þeim tilfellum tekur RSS.molar.is að sér að smíða löglegt RSS fyrir viðkomandi aðila, sem hægt er að skrá á lista yfir fréttaveitur og nota í ýmislegt annað, t.d. með því að skrá hjá xmltree.com.

Slík skráning fer einnig fram í umsóknareyðublaðinu.

Athugaðu að til að geta notað þessa þjónustu þarf viðkomandi blog-síða þó að uppfylla nokkur skilyrði: sérhver færsla verður að hafa í upphafi textans <a name="(tala)"> kóða og æskilegt er að í lok færslunnar sé einnig <a href="(varanleg slóð)"> kóði. Fyrsta setning færslunnar (fyrsta setning eftir <a name=...>) verður notuð sem fyrirsögn.

Smelltu hér til að lesa nánari leiðbeiningar um Blogger.com template skjöl!

ATH: Slóðirnar sem RSS.molar.is býr til fyrir blog-RSS vísa í yfirlitssíðu viðkomandi vefleiðara, ekki safn þess. Þær eru því í fæstum tilfellum varanlegar. Þetta er hægt að endurskoða ef vilji er fyrir hendi - endilega segið ykkar skoðun.



Hvað merkir það ef veita segist vera biluð?

Ef veita hættir að uppfærast eðlilega um nokkurt skeið, t.d. vegna þess að útgefandi hennar hefur hætt að gefa út RSS eða breytt sniði vefsins síns þ.a. tól RSS molanna skilja síðuna ekki lengur, þá er gælunafni veitunnar breytt þ.a. það vísi á RSS skrá sem gerir ekkert annað en að segjast vera biluð og vísa á þessa leiðbeiningarfærslu.

Ef þú ert umsjónarmaður vefs þar sem veitan hefur verið merkt biluð með þessum hætti, þá geturðu haft samband við uppl@molar.is til að ræða hvernig bæta má úr ástandinu.



Help! I don't understand Icelandic!

Too bad for you! This service is for Icelanders only, since I'm afraid providing service to the rest of the world would prove hard or impossible to do in my spare time. Nothing short of a shitload of cash will change my mind on this. Sorry! :-)

Feel free to check out the rssticker tools which are used to drive this site - they are free software which anyone may use to implement a similar service for themselves and their friends or customers. Contributions and help improving them are very welcome.