Ýmis verkfæri þurfti að smíða til að koma rss.molar.is á
laggirnar. Flest tólanna eru skrifuð í Perl forritunarmálinu, en áhugasamir
geta nálgast afrit af þeim á þessari síðu og sett upp hjá sér.
- rssticker
Þetta er forritið sem smíðar HTML lista úr RSS skrám. Það sér einnig
um að viðhalda fyrirsagnalistunum og raða fyrirsögnum í tímaröð. Þetta
forrit hefur sína
eigin heimasíðu (sem er á ensku). Áhugasamir geta skoðað
stillingaskrá rssticker
fyrir rss.molar.is.
- html2rss.pl
Þetta forrit leitar að upptalningum fyrirsagna í HTML skjali og býr til
úr þeim eitt eða fleiri RSS skjöl. Þetta er notað, ásamt
þessu skeljariti til að búa til
RSS skjöl með fyrirsögnum Morgunblaðsins,
og þessu sem fylgist með
Vísindavefnum.
- tv2rss.pl
Þetta er sérsniðið tól til að breyta yfirlitssíðum
Textavarpsins í RSS.
- blog2rss.pl
Þetta forrit leitar í HTML skjali sem viðhaldið er með
blogger.com að færslum, giskar á
hvað sé fyrirsögn fyrir hverja færslu fyrir sig, og býr til RSS skjal
úr þeim upplýsingum.
- rss.upd
Þetta er skeljaritið sem sér um að uppfæra sérsmíðuðu RSS skrárnar og
tryggja að aldrei líði meira en hálftími milli uppfærslna á
tímaskráningum fyrir miðlana sem eru á gælunafnalista.
Þetta er (næstum) allur galdurinn! Gaman væri að fá